Undirvinnsluaðilar
Aðilar sem hjálpa okkur að veita þjónustuna
Síðast uppfært 4. október 2026
Norrtrust notar aðeins þjónustuaðila sem þarf til að reka, verja og afhenda þjónustuna. Við hvern þeirra er í gildi vinnslusamningur nema annað komi fram í töflunni, og flutningur út fyrir EES byggir á stöðluðum samningsskilmálum ESB eða vottun samkvæmt EU-US Data Privacy Framework. Afrit samninga eru varðveitt hjá Norr Invest ehf.
| Aðili | Hlutverk | Staðsetning | Samningur |
|---|---|---|---|
| Supabase, Inc. | Gagnagrunnur og fylgigögn | Frankfurt, Þýskaland | Vinnslusamningur og staðlaðir samningsskilmálar ESB |
| Fly.io, Inc. | API og vinnslulag | Frankfurt, Þýskaland | Vinnslusamningur undirritaður 4. október 2026; vottun skv. EU-US Data Privacy Framework |
| Vercel Inc. | Vefviðmót og tímasettar keyrslur | Alþjóðlegt dreifikerfi; möguleg vinnsla í Bandaríkjunum | Vinnslusamningur, staðlaðir samningsskilmálar ESB og EU-US Data Privacy Framework |
| Functional Software, Inc. (Sentry) | Villuvöktun þjónsins; kennitölur, tákn og fyrirspurnir eru hreinsaðar burt áður en gögn fara | Evrópusambandið | Vinnslusamningur undirritaður 4. október 2026; EU-US Data Privacy Framework og staðlaðir samningsskilmálar |
| OpenSanctions | Skimun vegna alþjóðlegra þvingunaraðgerða og stjórnmálalegra tengsla — nafn, fæðingardagur og land; kennitala er ekki send | Evrópusambandið (Frankfurt, Þýskaland) | Vinnslusamningur samkvæmt þjónustuskilmálum; vinnsla eingöngu innan EES |
| Resend, Inc. | Sending könnunarboða og rekstrarpósts | Bandaríkin | Vinnslusamningur, staðlaðir samningsskilmálar ESB og EU-US Data Privacy Framework |
| Kenni ehf. | Rafræn auðkenning viðskiptamanna | Ísland | Vinnslusamningur í vinnslu |
| Google (Google Workspace) | Tölvupóstur Norrtrust, norrtrust@norrtrust.com | Alþjóðleg vinnsla | Cloud Data Processing Addendum samþykktur 4. október 2026; staðlaðir samningsskilmálar |
Sjálfstæðir ábyrgðaraðilar
Þessir aðilar vinna upplýsingar sem sjálfstæðir ábyrgðaraðilar samkvæmt eigin skilmálum, ekki fyrir hönd Norrtrust, og fá engin gögn um viðskiptamenn í áreiðanleikakönnunum.
| Aðili | Hlutverk |
|---|---|
| Rapyd Europe hf. | Kortaskráning, greiðslur og innheimta — varðar aðeins viðskiptavini Norrtrust, ekki viðskiptamenn þeirra |
| Valfrjáls innskráning starfsfólks með Google-aðgangi |
Breytingar og flutningur
Norrtrust tilkynnir viðskiptavinum almennt með 30 daga fyrirvara áður en nýr undirvinnsluaðili fær gögn. Viðskiptavinur getur andmælt breytingu á málefnalegum persónuverndarforsendum.
Þegar vinnsla fer utan EES er notuð fullnægjandi verndarákvörðun, staðlaðir samningsskilmálar eða önnur gild heimild ásamt viðbótarráðstöfunum eftir áhættu. Spurningar og beiðnir um afrit samninga má senda á norrtrust@norrtrust.com.