Um okkur

Norrtrust varð til af einfaldri ástæðu: tilkynningarskyldir aðilar eiga að geta sannað áreiðanleikakönnun sína — án þess að drukkna í handavinnu.

Við höfum séð regluverkið frá báðum hliðum: við að móta löggjöfina og við að framfylgja henni í daglegum rekstri. Að baki Norrtrust er meðal annars reynsla úr starfshópi dómsmálaráðherra við innleiðingu fjórðu og fimmtu peningaþvættistilskipunar Evrópusambandsins í íslensk lög — löggjöfina sem varð að lögum nr. 140/2018 — og á þriðja áratug úr regluvörslu og peningaþvættisvörnum í bönkum, greiðslufyrirtækjum og fjártæknifélögum, heima og erlendis.

Sú reynsla kenndi okkur að gagnvart eftirliti skiptir hakið í reitinn ekki máli heldur sönnunin: hver var staðfestur og hvenær, gegn hvaða listum var skimað, á hvaða forsendum var áhættan metin og hver tók ákvörðunina. Norrtrust er byggt utan um nákvæmlega þetta.

Kerfið er hannað fyrir íslenskan veruleika — rafræn skilríki, íslensk lög og reglugerðir og skjöl á íslensku fyrir eftirlit ríkisskattstjóra — og fyrir fyrirtæki sem hafa engan regluvörð á launaskrá.

Hafðu samband: norrtrust@norrtrust.com

Um okkur — Norrtrust